|
|
12.06.2008 15:30:04 / heidibj
Fyrir ykkur sem ennþá skoða/lesa bloggið mitt
Sumarið er mætt í öllu sínu veldi, er búið að vera gúúd veður á eyrinni .. kvarta ekki yfir því Það styttist og styttist í sumarfrí , ekki nema 4 vikur í letilífið og roadtripið okkar söndru. Stefnum að því að keyra suður helgina 11 júlí , kíkja á borgarlífið og búðirnar kannski aðeins og svo jafnvel taka með okkur tjald og fara í útilegu einhversstaðar á leiðinni ..vuhúúú Síðan er planið hjá mér´að fara í sumarbústað með guðrúnu sys og svo kemur versló og þá ætlar mín í sommerhouse með tengdó og ætli svenni fái ekki að koma með líka Svo er það bara afslöppun í ágúst .. undirbúningur undir haustið sem er bara ???? En nóg um planið mitt í sumar, núna erum við skötuhjú ein heima hjá mér, mútta og pabbi eru á Ródos. Það er very nice að vera ein heima, nema kannski´i gær þegar ég var að elda kvöldmatinn og svenni var ennþá í vinnunni og ég gat ekki opnað salsasósu krukku og engin til að hjálpa mér ..sjitt ég var alveg að drepast í skapinu ! Síðan skellti ég mér út garð eftir kvöldmat og ætlaði að slá garðinn á mettíma áður en GREYS mundi byrja (tvöfaldur lokaþáttur) . ég skellti mér i ljótustu fötin sem ég fann í fataskápnum , dró upp Ipodinn og arkaði út í garð alveg tilbúin í slaginn. Eeeen ég gat ekki startað helv sláttuvélinni, og eftir svona sirka hálftima þá gafst ég upp !!! rauk inn og hringdi brjáluð í svenna , spurði hann af hverju hann gæti ekki verið heima þegar ég þyrfti á honum að halda !! ahahaha .. þannig að ef ykkur langar að slá garðinn og sameignina heima þá megiði endilega skella ykkur í það.
Annars styttist bara og styttist í að ég fari að vinna niðrí bæ í bankanum þar, byrja á mánudaginn og hlakka ekkert smá til ! Svo er Adda mín að koma norður um helgina og verður í nokkra daga, og hrabba er líka að koma heim eftir 3 vikur í borginni, það lítur allt út fyrir að við 4 verðum allar á ak og gætum hugsanlega hist .. hefur ekki gerst síðan einhverntíman síðasta sumar held ég er farin að sakna ykkar kjánarnir mínir


Svona á ég ótrúlega sætar vinkonur
Jæja ætla að skreppa í nettó, hafiði það gott og muniði bara að kvitta skinnarar ..
tshuss
p.s. hrabba er búin að hugsa til þín síðan 9 í morgun
»
28.04.2008 16:38:29 / heidibj
Sæææææææææææælllll spurning um að láta ekki síðuna drepast alveg Sumarið er komið og vorilmur í lofti eins og siggi stækennari sagði í old days  Ekki nema 2 og hálfur mán þangað til ég fer í sumarfrí ..jibbí!  hef aldrei áður verið í sumarfríi, verður illa nice. Er búin að reyna að blogga lengi en annaðhvort kemst ég ekki inn, eða þá kemur færslan ekkert og svo loksins á fös þegar það tókst bæði þá fraus elskulega talvan, eeen snillingurinn hædí var búin að savea bloggið .. góð saga Annars er nú ekki mikið nýtt að frétta, bara vinna og vinna , tókum reyndar eitt gott djamm um daginn þegar nýdönsk var, hittumst nokkrar stelpur heima hjá bófanum og skunduðum svo níðrí bæ og það fóru flestar á nýdönsk nema ég og hrabba nenntum ekki og fórum kaffi ak/amor rúnt , það var bara gaman hjá okkur .. þó svo við hefðum kannski alveg mátt sleppa 2 síðustu glösunum ehhmm ..vorum orðnar ansi hressar undir lokin hehe Síðasta helgi var svohljóðandi fyrir ykkur sem langar að vita -frí á fimmtudaginn, horfði á svenna keppa og fórum svo í 40 ára afmæli til pabba hans .. -fórum í leikhús á fös, á Dubbelduch, kom mér á óvart ..okkur fannst það báðum mjög skemmtilegt - lágum í leti á laugardaginn, horfðum á fótbolta (hvað er að verða um mig) hehe, síðan fórum við sandra á rúntinn um kvöldið , hef ekki rúntað svona lengi í langan tíma. - var svo að vinna allan gærdaginn og fórum svo í bíó í gærkvöldi á street kings. Geggjað góð mynd sko J
Jæja komin tími til að fara að VINNA !

það minnsta sem þið getið gert er að kvitta kv.hædí fararstjóri

»
11.03.2008 16:28:37 / heidibj
Það þarf nú bara námskeið á þetta nýja blogcentral..hehe, ég er búin að vera frekar lengi að komast inn og átta mig á þessu Allavega þá er allt gott að frétta, ég er bara always working með bryndísi á torginu góða, alltaf vinsælt að kíkja á okkur in das bank, verðum með heitt á könnunni  Er að fara í borg óttans um helgina, árshátíð Kaupþings er á lau , hlakka geggjað til að fara ég verð líka með svo geggjaðan maka, bófann sjálfan ! við ætlum að gista hjá partý padda á föstudagskvöldið og svo á hótelinu á lau og erum búnar að leigja okkur þrjár saman bílaleigubíl til að rúnta á milli búðanna (eins og bjarney orðaði það) hehe nei ég ætla nú ekkert að versla fyrir sunnan, SPARA bara ... segðu
Svenson er að fara til spánar á laugardaginn í vikuferð, pungurinn ..væri alveg til í smá sólarglætu og annað umhverfi. En þa ðverður kannski bara í haust, er það ekki svenni ? hehe Já mér tókst á ótrúlegan hátt að týna trúlofunarhringnum mínum á öskudaginn !! hann var orðin dálítið víður og ég tók bara alltí einu eftir því að hann var ekki á mér :/ þannig að þá fór í gang dauðaleitin ógurlega .. það lá við því að ég hafi gengið um bæinn með málmleitartæki ..en allt kom fyrir ekki , ekki fannst hringurinn :/ það var leitað í ryksugupokanum á bjargi (guð hjálpi þeirri manneskju) , og ég setti auglýsingu í dagskránna og hvað eina. Þannig það þurfti bara að smíða nýjan í snatri og ég fékk hann loksins í gær 
Annars er nú ekki mikið að frétta, við hittumst um daginn stelpurnar sem vorum saman í glerárskóla , það var bara mjög gaman , skoðuðum old photos og hlógum að því hvað við vorum sæt og smart hérna í denn hehe Svo fórum við Svenni í leikhús á fló á skinni og sjitt hvað þetta er fyndið leikrit, bara ef þú ert ekki búin að fara þá verðuru að fara. Þetta er algjör snilld sko  annars er bara same old ..bíð bara spennt eftir páskafríinu, er að spá í að skella mér til örnu og finns í sumarbústað um páskana, kíkja til þeirra og gista kannski í eina nótt , fara í pottinn og sötra hvítvín ..er þaggi arna
well ég ætla að fara að gera eitthvað af viti hér í workinu hafiði það gott :*
»
30.01.2008 13:26:36 / heidibj
Gærdagurinn í gær var örugglega með þeim óheppnustu dögum sem ég hef upplifað ! sko tað byrjaði þannig að brúsinn minn var ónýtur í ræktinni, nýji fíni brúsinn sem sandy gaf mér .. okei það var nú alltí lagi eeen svo lak sjampóið mitt og öll ræktartaskan mín og fötin voru löðrandi í bed head sjampói (frekar sterku sjampói) ! ég varð svona nett pirruð .. heyrðu svo í gærkvöldi dó síminn minn!! já ég var að tala í hann og svo bara datt skjárinn út og það var ekkert hægt að gera ..alveg týbiskt :/ sumir vilja meina að hann hafi dáið sökum ofnotkunar ...haha En ég fór með hann í morgun í viðgerð og fékk lánssíma, rosa flottan  Vonandi verður dagurinn í dag aðeins skemmtilegri bara, engin hætta á öðru að það verði gaman hjá mér og bbb á torginu góða er svo að vinna á video í kvöld , alveg geggjað Svenni fór reyndar austur að vinna í morgun, er ekki alveg að fýla að hann fari svona, en hann verður bara í tvo daga núna , ekkert langt sem betur fer. SVo er verið að plana djamm 9 feb , já mín er sko að fara að djamma þá .. arna og ég erum alveg að plana þetta hehe , erumfrekar tímanlega sko en þegar maður er orðin mother þá verður maður að plana með fyrirvara ,er þaggi arna ? hehe ég var að búa mér til myspace , www.myspace.com/heidabj held ég að slóðin sé endilega kíkjiði á það krakkar mínir .. 
Ein sæt mynd af mér og öddu síðan á annan í jólum heima hjá bjarney (sem er btw í austurrísku ölpunum núna að brettast, engin öfund ) Hlakka til að hitta þig 19 feb adda mín ..víí 
svo ein af mér og heiðari kató .. litla sæta nafna mínum og guðsyni :* vil svo að allir kvitti fyrir komuna tchuuuus :*
»
21.01.2008 17:29:47 / heidibj
Sææææææll Það er engin smáræðis mánudagur í gangi hérna, vá dagurinn er búin að vera SVO lengi að líða, ætlar engan endi að taka Annars er alles gúd af mér að frétta, ég var eitthvað að lofa uppí ermina á mér með þennan áramótaannál, er helgarannáll ekki bara fínn ? Fimmtudagur: fór í matarboð/stelpuhitting til söndru, þar sem matarklúbbur var stofnaður vuhu ..spurning hvort við stöndum við hann, maður er alltaf svo rosa busy (right) föstudagur: við svenni brunuðum á illugastaði, oki við brunuðum ekkert..það var alveg crazy veður og mátti litlu muna að við mundum ekki komast yfir víkurskarð en það hafðist! vorum á leið í sumarbústað með vinum svenna og þeirra kærustum, það var rosa gaman , grilluðum, fórum í pottinn og spiluðum trival (stelpur á móti strákum) og við UNNUM ahahaha ..og mér finnst það ekki leiðinlegt ! svenni er frekar tapsár hehe Laugardagur: var að vinna á video, horfði á leikinn , kúrði upp í sófa með svenna þangað til hann fór til strákanna, þá skellti ég mér í göngutúr sem endaði í næstu götu ahah .. hjá gestgjafa ársins sandy sunnudagur: fór í bíó með Sunnu Karen á Bee Movie jibbí .. og bauð svo Tinnu og HRöbbu í mat um kvðldið  semsagt fínasta helgi ég er búin að vera að basla við að reyna að búa mér til myspace, þetta er alveg að takast , maður verður að vera í tískunni og vera með Myspace haha guðrún systir er úti á Kanarí núna og lætur mig alveg vita hvað er heitt hjá henni .. pff , það er ekkert gaman að liggja í sólbaði núna á sólarstönd og versla þess á milli , miklu skemmtilegra að vera kappklæddur og þurfa að skafa af bílnum á hverjum morgni  las stórundarlega frétt áðan á mbl http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2008/01/20/danmerkurmot_i_sjalfsfroun/ barbara bíður víst spennt eftir að skrá sig, er haggi barbz? ahaha ætla að fara að gera eitthvað af viti knús á línuna heidi
»
11.01.2008 17:34:16 / heidibj
Ég er ekki hætt að blogga , þetta er allt að koma hjá mér ! gleðileg ár allir takk fyrir það liðna ég ætlaði að koma með rosalegan áramótaannál eeeen það kemur næst á morgun segir sá lati er það ekki ??? það er GLIMMER júróvisjón partý í vinnunni í kvöld og það gæti bara verið að sjálfur Paul Oscar mæti á svæðið ég er samt ekki með neitt dress en það reddast dagurinn í dag er búin að vera svoooooo lengi að líða þetta er alveg að hafast ég hef ekkert að segja bið bara að heilsa ykkur lofa bloggi bráðum og jafnvel myndum líka þar sem ég fékk svona ljómandi fallega myndavél í jolagjöf
bleeeeeeeeeeeee
»
27.11.2007 15:45:35 / heidibj
- hef ekki bloggað í óratíma, engin afsökun fyrir því önnur en leti , og jú kannski tímaleysi
- margt búið að gerast síðan síðast
- Arna og Finnur eignuðust lítinn gullfallegan prins 26.10.2007 , algjör PRINS, víííí mig langar í börn
- eða nei ekki alveg strax
- íris og gunni eru líka búin að eignast litla bjútí prinsessu, til hamingju með það
 - en jám útí annað
- við skötuhjú skruppum suður síðustu helgi
- í verslunar og afslöppunarferð með múttu og pabba
- það var verslað en lítið slappað af, allavega var ég drulluþreytt eftir allt þetta búðarráp
- en það var samt æði hjá okkur, alltaf gott að skreppa aðeins úr "sveitinni" aha.
- reyndar hitti ég öddu ekkert nema í make up store þegar ég heimsótti hana í vinnuna , sem er nottla ekki alveg nógu gott :/
- ég og sandy erum alveg að brillera í gyminu, er búið að biðja okkur um aðtaka þátt í fitness...right
- en samt erum við ógeðslega duglegar, ætlum meira aðsegja að prufa boxið en gamla beilaði á mér í dag..enda var ég ekki lengi að finna mér nýjan félaga .. ahaha
- ég er farin að hlakka til jólanna, er alveg í jólagírnum á torginu góða með jólalögunum í útvarpinu
- síðan fer ég heim og lít inni í herbergið mitt og BAMM ..jólaskapið hverfur
- ef einhver hefur áhuga á að vinna sér inn smá pening þá ma hann hafa samband
- starfið felst í því að taka upp úr ferðatöskunni minni, taka upp úr öllum verslunarpokunum og ganga frá öllu, þvo þvott, þrífa herbergið ..skreyta það og setja upp seríur (pabbi reddar kannski seríunum) ....ég lofa góðu kaupi
- guðrún og þóra..ég veit að ykkur langar ???
- síðan er bara vinnutörn framundan, það eru próf í VMA og þá verð ég að vinna mikið á videoleigunni á kvöldin og um helgina .. víííí
 - svo eru ARNA og BESSI að fara aðskíra litla prins á laugardaginn og ég hlakka svo til að vita hvað hann á að heita, ég hef samt mínar grunsemdir tíhí
- Síðan erum við sveinn (voða formlegt að kalla hann sveinn) að fara á jólahlaðborð á laugardagskvöldið með Kaupþing , verður örugglega mjöög gaman
- ætla að binda enda á þetta yndislega punktablogg
knús á línuna heiða björg
»
25.10.2007 15:39:45 / heidibj
Allt gúd að frétta af mér, tengdó voru að fara til Madrid áðan eða núna bara, og ég verð þá móðir um helgina, aha ..passa systkini hans svenna, 9 og 10 ára ,og jú þar sem tengdamamma verður í burtu ætli ég þurfi þá ekki að sjá um svenna líka ég verð semsagt í að þvo þvott , elda og sjá um að allir læri og svona ... eða reyndar áttum við svenni að sjá um þetta en hann er bara alltaf vinnandi langt fram á kvöld og um helgar þessi elska þannig að ég verð bara mother of the house eins og bryndís mundi orða það hehe ... Ég er alveg sjúk þessa dagana í utanlandsferðir, aðallega borgarferðir ..eða verslunarferðir. Ég virðist hafa einhverja óstjórnlega eyðsluþörf, skil þetta ekki en við ákváðum bara að fara í staðinn suður eina helgi núna í nóvember og versla aðeins julegaver og svona , síðan er starfsdagur í bankanum fyrir sunnan 17nóv og það verður vonandi geggjað gaman , er einmitt að reyna að draga svenna með í það.. Síðan er Arna mín alveg að fara að eiga, svona ef krakkinn hættir að stríða henni svona hehe ..hlakka til að sjá litla krílið ..spörning hvort þetta verði boy eða görl ?? ahahah  Hún Arna var einmitt að lána mér í gær Greys Anatomy seríu3, ég hef nefnilega ekki séð þriðju seríu og ég vil nottla vera búin að sjá hana áður en þetta byrjar 31 okt á stöð2, get ekki beðið , þetta eru bara æðislegir þættir, bara jafngóðir og næturvaktin skiluru ..... Þannig að helgin er alveg plönuð hjá mér, passa og horfa á greys ..hljómar alveg ágætlega,er þaggi ?? jæja þetta gengur ekki lengur goooodbye hædí ofurbloggari
»
19.10.2007 12:50:57 / heidibj
OMG (eins og versta gelgja) , það er að koma helgi , laaangþráð helgi og langþráður laugardagur , þessi vikar er búin að vera crazy! ræktin, vinna, vinna aftur á video um kvöldið ..vakna snemma og aftur ræktin osfrv .. Reyndar var mánudagurinn afskaplega góður þar sem ég átti afmæli , var að vinna í das bank um daginn og síðan buðu mútta og pabbi okkur svenna út að borða og fengum rosa góðan dinner .. og svo má ekki gleyma því að þegar ég kom í vinnuna þá beið mín gulrótarkaka með 4 afmæliskertum og pakki .. takk bryndís mín hehe SVo hélt ég smá afmæliskaffi fyrir vinkonurnar á sunnudaginn síðasta, mjög fínt bara ..nennti ekki að hafa party like usual, það vantaði bara padda litla sem var í borginni :/ Ætli ég verði ekki líka að segja líka frá því hvað ég var ÖMURLEG vinkona um síðustu helgi ,ég datt alltíeinu í einhvern ægilegan djammgír á laugardaginn seinnipartinn. Hringdi í Söndru og sagði að við yrðum nú að djamma um kvöldið , kíkja til röggu og drekka. Sandra var á leiðinni heim frá rvk keyrandi með Eika og varð ægilega spennt fyrir djamminu og fann vodka fleyg í skottinu á yaris, sendi eika inn í næstu sjoppu á leiðinni að kaupa bland ..síðan byrjaði hún að drekka og gamla kláraði fleyginn næstum því .. síðan þegar hún kom til akureyrar og við drifum okkur til Röggu ..haldiði að ég hafi ekki hætt við að drekka og djamma Sandra orðin vel drukkin og ég beilaði svona feitast á henni hahaha sorry elskan. En við fórum samt út, ég var bara driver og ætluðum fyrst á vélsmiðjuna en svo enduðum við í sjallanum á no request, ég var svosem ekki að fíla það en lét mig hafa það fyrir svenna minn... :* Það fer svo að koma tími til að ég setji inn einhverjar myndir hérna inn, lofa alveg bráðum  jæja that´s it heidi
»
08.10.2007 13:27:09 / heidibj
ég er eitthvað tóm í dag, finnst ég samt vera neydd til að henda einhverju smá hérna inn Allavega þá er helgin búin , því miður .. og monday komin í öllu sínu veldi.. og það nýjasta í fréttum er að ég á bráðum afmæli ...jibbíí ég hlakka svo til, það er svo gaman að eiga afmæli. Ég held samt að það verði ekkert partý þetta árið, ég er að pæla í því að breyta útaf vananum á afmælinu mínu og hafa ekkert afmælispartý í steinahlíðinni (eða sunnuhlíð eins og síðast), ætla bara frekar að bjóða einhverjum útvöldum í afmæliskaffi og tilheyrandi ég er einhvernveginn alveg komin með nóg af djammi í bili, sérstaklega hérna á ak, alltaf það sama , sama fólkið, sama tónlistin ... voða mórall hehe ... Ég var í fríi í vinnunni um helgina og það var hreint út sagt æði .. gera bara ekkert og njóta þess að vera með svenna mínum. Ég ætlaði reyndar til örnu á laugardagskvöldið en þá datt eg í einhvern þrifnaðar gír heima og var að laga til í herberginu mínu fram að miðnætti hehe .. og síðan ætlaði ég til söndru í gærkvöldi og skoða varningin sem kjellan verslaði í RIGA en þá fórum ég og svenni að horfa á einhverja mynd og duttum alveg inn í hana þannig að ég var bara líka hjemme í gærkvöldi .... Annars er bara orðið ískyggilega stutt til jóla, og ég er einhvern veginn alltaf að hugsa um það hvað ég hlakka til jólanna, klikkuð ? Svo á Arna mín bráðum að eiga, það er ekki nema tæpar 3 vikur í það váá ég hef voðalega lítið að segja ætla að fara að gera eitthvað af viti bið að heilsa ykkur hædí
»
24.09.2007 21:57:48 / heidibj
já ég ákvað bara að læsa síðunni, ekkert út af neinu sérstöku ..bara langaði alltí einu að læsa henni. en af mér er allt ljómandi gott að frétta. Ég var að koma úr borginni á föstudaginn, ég var þar í 4 daga á námskeiði í bankanum það var bara mjög fínt, námskeiðið var ágætt og það var æði að hitta öddu og ömmu og afa og kötu frænku og svona .. ég náði líka að versla aðeins, samt ekkert mikið. Maður er nú að spara .. keypti samt geggjaðan jakka og peysu á svenna, mjög flott á kallinn hann á nefnilega svo lítið af fötum (right) síðan var ég bara að slappa af síðustu helgi, guðrún og steini eru í New York og stelpurnar þeirra eru hjá okkur í steinahlíðinni , þannig að ég var bara að hjálpa mömmu að passa um helgina og hafa það notalegt með svenna mínum, við vorum bara farin að sofa fyrir miðnætti meira segja .. orðin svaka gömul hehe Svo byrjuðum við sandra í rækitnni aftur í morgun, við ætluðum á gravity námskeið sem átti að byrja í morgun en því var frestað af því það skráðu sig svo fáir við vorum frekar svekktar, en fórum samt bara í salinn á bjargi og tókum vel á því , ætlum að reyna að vera svaka duglegar´í vetur svo er kellan bara að fara suður á laugardaginn í dagsferð með bankanum á starfsdag , o´g ég hlakka bara pínu til , ég , bryndís og bjarney erum nottla að fara og svo hittum við öddu fyrir sunnan af þv´ihún er í kaupþing í kópavogi. þannig að þetta verður bara gaman hjá okkur Svo á Svenni minn afmæli á sunnudaginn næsta, 30 september .. kallinn verður 21 árs :* :* jæja ég ætla að fara að horfa á CSI new york hafiði það gott öllsömul :* og veriði dugleg að kvitta þá verð ég svo glöð
»
04.09.2007 16:44:12 / heidibj
ég var búin að skrifa alveg helling en nei það datt út ........... ég er ekki alveg sátt með það - ég og svenni fórum um síðustu helgi í sumarbústað á illugastöðum með tengdó og vinafólki þeirra. Það var æðislega gaman
- við tókum Sunnu Karen systurdóttur mína með okkur
- við fórum í réttir
- og berjamó
- og ég prófaði krossara í fyrsta skiptið
- og mér fannst svona helvíti gaman!
- síðan höfðum við það bara ótrúlega gott , fórum í pottinn og grilluðum
- ég er eiginlega farin að plana aðra svona ferð bráðum
- Ma & Pa eru á Krít núna, smá öfund í gangi
 - það var bara 35stiga hiti hjá þeim í gær
- en það þýðir ekki aðvera að svekkja sig á því
 - það er staffadjamm á lau með videoleigunni, akinn og sprettinum
- verður örugglega ægilega gaman, engla og púka þema
- en ég er samt að vinna á videoleigunni um kvöldið
- það var svo erfitt að finna einhvern til að vinna
- þannig að ég og íris BUÐUMST til að vinna
- erum alveg svakalega góðar
- en annars er ég bara ennþá í fýlu að færslan mín datt út áðan
- ætla bara að slútta þessu
- KOMA SVO OG KVITTA FOLKS
 
hædí
»
27.08.2007 17:40:10 / heidibj
....eru alveg yndislegir , ég svíf um á einhverju skýi þessa dagana , læt mig dreyma um hitt og þetta ..t.d ´nýja íbúð, nýjan bíl, utanlandsferðir ofl .. kannski eitthvað af þessu komi bráðum tíhí Annars er Mánudagur í dag og oftast eru mánudagar hjá mér svona: geispandi allan daginn, dagurinn MJÖG lengi að líða, hugsa að það sé laaaangt í næstu helgi os.frv ... eeeen aftur á móti í dag er ég bara ekkert geispandi .. dagurinn er bara búin að´þjóta áfram og ég bara sit hérna í vinnunni skælbrosandi Helgin var bara góð, ég og mr.sven höfðum það bara notalegt á fös, horfðum á tv, meðal annars Stelpurnar, sem er alltaf jafn mikil snilld .. og síðan fórum bara frekar snemma að sofa. Ég fór síðan aðeins á djammið á lau, fórum til Helgu sætu og drukkum aðeins þar .. það var bara stelpupartý , mjööög gaman Síðan fórum við bara þennan usual hring í bænum, á Kaffi Ak og Amor til skiptist..reyndar fór ég aðeins á dátann líka, aðallega til að ná í svenna minn og þar hafði einhver ælt svona pent á dansgólfið og það var alveg ógeðslega vond og sterk ælufýla þegar ég kom þangað ..ÓGEÐSLEGT svo fórum við á kaffi ak .. og það var strákur að labba fram hjá okkur á dansgólfinu, alltí einu setti hann upp skrýtin svip og ældi bara beint á gólfið í eitt horn þarna ..voðalega nice eitthvað ..allir bara ælandi þetta kvöld ´ EEEn nóg um það , svo er planið um næstu helgi að skella sér í sumarbústað með tengdó, ég hlakka bara pínu til , ég er í fríi um næstu helgi og ætla bara að slappa af í heitum potti í sólinni (vonandi!) Síðan fór Barbara mín til danmerkur í morgun aftur .. takk fyrir lordagsaften :* ooooooó ég er búin að vinna ....best að fara að loka og ganga frá lov HÆDÍ
»
21.08.2007 14:22:21 / heidibj
Góðan DAG Ég vaknaði í morgun með hálsríg, hausverk og massívar hellur ..ég heyri ekki baun ! semsagt ótrúlega góð byrjun á þessum degi ...aaaa síðustu dagar og vikur hafa verið afskaplega tíðindalitlir , ég er búin aðvera að vinna frekar mikið , og er eiginlega komin með pínu leið á því að vera alltaf í vinnunni, einu skiptin sem ég sé svenna er þegar ég kem heim um miðnætti á kvöldin og þá er hann sofandi :/ ikke gúd Svo er spörning um að dríbba sig á djammið á laugard, mig langar að svo mikið að halda eitthvað gott stelpupartý ...eeeen ég veit bara ekki alveg hvar hugmyndir væru vel þegnar takk! sandra beiler ætlar suður um helgina. en ragga kemur bara frá ólafsfirði í hennar stað í partý gírinn.. Adda mín er bara farin í borgina, flutti í kópavoginn með heiðmari sínum .. nú þarf ég bara að dríbba mig suður í heimsókn til þeirra og sjá íbúðina og versla aðeins (right ..ég er að spara ) SVO eiga bara allir afmæli um þessar mundir , þóra systir á afmæli á morgun, kjellan verður 18 held ég haha pála alabamafari verður 21 á fös!:* og síðast en ekki síst verður ARna mín 21´árs á sunnudaginn ! Til hamingju með afmælin ykkar ..mússí SVo á ég sjálf afmæli 15 okt þannig að það er ekki seinna vænna fyrir ykkur að byrja að spara fyrir afmælisgjöfinni minni .. jæja best að fara að GERA eitthvað af viti , kíkja jafnvel á perezhilton.com ´ Hædí
»
08.08.2007 13:29:16 / heidibj
....og mér gæti ekki verið meira sama Ég hef hingað til
verið oftast í útlöndum um versló, en það var samt fínt að vera
heima núna .. djamma, sofa og já that´s it
Ég er samt eitthvað blue í dag ... ekki alveg í bloggstuði en
þar sem það er rólegt í vinnunni þá neyðist ég til að blogga
..right ? Mér finnst pínu skrýtið að vera ekki að fara í
skóla í haust , fyrsta skiptið sem ég fer ekki í skólann þegar
sumarið er búið , en það verður bara vonandi þægilegt , gott að
sofa aðeins lengur á morgnanna...zzzz
Mér finnst einhvernveginn allt vera að breytast , kannski er það
aldurinn sem ég er komin á, það eru allir að fjölga sér (gott mál
samt), og bara mjög margir að breytast , bæði til hins betra og
líka pínu til verra , æji nú er ég hætt að bulla 
Ef einhver vill bjóða mér með í töskuna sína til útlanda þá
hefur hann bara samband , vá ég er að DEYJA mig langar svo út , ég
sé sólina fyrir mér í hyllingum og sundlaugarbakkann... eeen
þegar við ætlum að fjárfesta í íbúð þá verður maður að
SPARA (það er hugtak sem ég á erfitt með að læra) Guðrún viltu taka
mig með til New York í sept ? í staðinn fyrir steina muhahah
æi þetta er nú hálf boring bloggerí ..
bleee
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|
|